• Leikhús

Táknmálstúlkaðar leiksýningar

1. nóv. 2021

Thlhtaknmtulkun

Hraðar hendur og Þjóðleikhúsið bjóða uppá hvorki meira né minna en 3 táknmálstúlkaðar leiksýningar og sýningar með táknmálsaðgengi í Þjóðleikhúsinu í vetur. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Döff fólki og þeirra vinum og vandamönnum býðst sérstakur korta-afsláttur á þessar sýningar. Aðeins einn sýningardagur er í boði af hverju verki.

Laugardaginn 13.nóvember 2021, kl.12.00 Út að borða með Ester í Hádegisleikhúsinu, táknmálstúlkuð af Ástbjörgu Rut Jónsdóttur og Arnari Ægissyni. Leikarar: Guðrún Gísladóttir og Sigurður SigurjónssonInnifalið í miðanum er súpa og brauð.  Sýnt í Þjóðleikhúskjallaranum. Verð: 2.730 (fullt verð 3.900). Miðasala:  hér

Sunnudaginn 9.janúar 2022, kl.12.00. Kardemommubærinn, fjölskyldusýning.  Adda Rut mun bjóða uppá að hitta táknmálstalandi leikhúsgesti sýningarinnar nokkrum dögum fyrir sýninguna, fara yfir sögu verksins og syngja með þeim nokkur lög úr sýningunni á táknmáli. Á sýningardaginn kíkja þau svo í heimsókn í leikhúsið með Öddu Rut, fá leiðsögn um leikmyndina og fá að hitta persónur verksins stuttlega. Sýningin er ekki táknmálstúlkuð, en Adda Rut mun verða á staðnum meðan á sýningu stendur.  Sýnt á Stóra sviðinuVerð: 4.130 (fullt verð 5.900). Sendið póst á hradarhendur@gmail.com til að kaupa miða.

Miðvikudaginn 9. febrúar 2022. Góðan daginn faggi, sjálfs-ævisögulegur söngleikur, um skömm, mennsku og drauminn um að tilheyra. Táknmálstúlkað af Ástbjörgu Rut Jónsdóttir. Flytjendur: Bjarni Snæbjörnsson og Axel Ingi Árnason. Sýnt í Þjóðleikhúskjallaranum. Verð: 3.430 (fullt verð 4.900). Miðasala:  hér