Þátttakendur óskast í rannsókn
Reynsla döff einstaklinga á Íslandi af áföllum innan döff samfélagsins og úrvinnslu þeirra
Þátttakendur óskast í rannsókn
Þú getur tekið þátt ef þú
• ert 18 ára eða eldri og notar íslenskt táknmál
• skilgreinir þig sem hluta af döff samfélaginu á Íslandi
• hefur reynslu af atburði eða aðstæðum innan samfélagsins sem þú upplifir sem áfall
• að minnsta kosti sex mánuðir séu liðnir frá áfallinu
Fólk af öllum kynjum er velkomið til þátttöku
Í hverju felst þátttaka?
Þátttaka felst í einu 60–90 mínútna viðtali. Mögulega verður óskað eftir einu eftirfylgniviðtali
sem er valfrjálst og tekur einnig 60–90 mínútur.
Viðtölin fara fram á íslensku táknmáli í lokuðu rými hjá Félagi heyrnarlausra og verða
myndbandsrituð með samþykki þínu.
Þátttaka er frjáls. Þátttaka er frjáls og fyllsta trúnaðar verður gætt við meðferð upplýsinga. Hitt kemur
fram í kynningarbréfinu.
Rannsóknin er meistararannsókn í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri
Hefur þú áhuga á að taka þátt eða vilt vita meira?
Hafðu samband við Kristinn Arnar Diego, meistaranema, á netfangið kad3@unak.is fyrir
10.12.2026. Vinsamlegast tilgreindu kyn þitt í tölvupóstinum, þar sem leitast verður við að hafa
kynjahlutfall þátttakenda sem jafnast.
Ábyrgðaraðili og leiðbeinandi: dr. Hulda Sædís Bryngeirsdóttir, dósent við Háskólann á
Akureyri, hulda@unak.is.
