Umsókn úr bjargarsjóði

Umsóknarfrestur til 30.september 2015

31. ágú. 2015

Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur  auglýsir eftir umsóknum

Tilgangur sjóðsins er að styrkja táknmálstúlkun eða textun á íslensku menningarefni, hvort heldur er í sjónvarpi, kvikmyndahúsum eða í leikhúsum.

• Rétt til að sækja um styrk hafa framleiðendur og íslenskir rétthafar sjónvarpsefnis, kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum og einnig leikhús.

• Þeir umsækjendur skulu að öllu jöfnu sitja fyrir sem ekki eiga kost á öðrum styrkjum.

• Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum frá sjóðstjórn, ásamt ítarlegum upplýsingum um verkefnið og umsækjendur. 

Umsóknarfrestur er til 30. september 2015

Allar nánari upplýsingar eru að finna á heimasíðu styrktarsjóðsins:

  http://www.deaf.is/tjonusta/styrkir/bjargarsjodur/

Félag heyrnarlausra

bt/ stjórnar Styrktarsjóðs Bjargar Símonardóttur,

Þverholti 14,105 Reykjavík

eða á deaf@deaf.is