Umsókn úr menntunarsjóði

umsóknarfrestur til 30.september 2015

31. ágú. 2015

Stjórn Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Menntunarsjóði.  

Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar sem og starfsþjálfunar.  

Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi heyrnarlausra.  

Upplýsingar um sjóðinn ásamt umsóknareyðublöðum fást á  http://www.deaf.is/tjonusta/styrkir/menntunarsjodur/

Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt ítarlegum upplýsingum um umsækjendur og væntanlegt nám, ber að senda til:  

Stjórn Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra, 

Þverholti 14

105 Reykjavík. 

Umsóknarfrestur er til 30.september 2015