Aðalfundur 2025
*Athugið: Aðalfundurinn er eingöngu fyrir fullgilda félagsmenn*
Aðalfundur Félags heyrnarlausra verður haldinn fimmtudaginn 8. maí næstkomandi í félagsheimili Félags heyrnarlausra að Þverholti 14, 105 Reykjavík.Fundurinn hefst kl. 17:00 stundvíslega og stendur til kl. 19.00.
Dagskrá fundarins samkvæmt lögum Félags heyrnarlausra er eftirfarandi:a) Formaður félagsins setur fundinn
b) Kosning fundarstjóra
c) Kosning ritara
d) Endurskoðaðir reikningar fyrir síðustu tvö almanaksár lagðir fram til samþykktar
e) Formaður les skýrslu stjórnar frá tímabili síðasta aðalfundar
f) Umræður um skýrslu stjórnar
g) Bornar upp tillögur er fyrir fundinn hafa verið lagðar
h)Kosning varaformanns, eins aðalstjórnarmanns og tveggja annarra varastjórnarmanna
i) Tillögur um lagabreytingar, ef fyrir liggja
j) Ákvörðun félagsgjalds
k) Önnur mál
Framboðum til stjórnar félagsins og tillögum að lagabreytingum skal skila til skrifstofu félagsins á deaf@deaf.is sem kemur þeim til kjörnefndar eigi síðar en 21 dögum fyrir boðaðan aðalfund eða 17. apríl 2025.
Stjórn félagsins er þó heimilt að víkja frá þessu frestsskilyrði ef sérstakar aðstæður mæla með því hvað varðar framboð til stjórnar.