NNDR sextánda fræðaráðstefna

  • 10.5.2023 - 12.5.2023, Grand Hótel

Nánari upplýsingar um aðalfyrirlesara má finna á www.nndr2023.is.  Auk aðalfyrirlestra verða um 500 kynningar á rannsóknum í málstofum um viðfangsefni sem tengjast ýmsum sviðum í lífi fatlaðs fólks.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu NNDR-ráðstefnunnar sem Felag um fötlunarranasóknir leggur sértaka áherslu á þátttöku fræðafólks og annarra aðila á sviði rannsókna um Döff og heyrnarlaust fólk.  Einn aðalfyrirlesaranna er Hilde Haualand en hún er fyrsti Döff einstaklingurinn til að gegna stöðu prófessors í Noregi.  Auk þess verður fjöldi erinda í málstofum sem fjalla um rannsóknir á þessu sviði.

Ráðstefnan verður stærsta fötlunarfræðiráðstefna á Norðurlöndum frá upphafi fræðigreinarinnar og mögulega sú stærsta í heiminum.  Hún er vettvangur fræðslu og samskipta á milli fræðafólks, aðila úr hagsmunasamtökum fatlaðs fólks, fagfólks, aðila í þjónustu og hjá yfirvöldum og fleira fólks.  Þátttakendur koma frá Norðurlöndunum en einnig frá Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og víða að úr heiminum.

Eins og önnur ríki stendur Ísland frammi fyrir margþættum áskorunum í framkvæmd réttindasáttmála fatlaðs fólks.  Nú þegar ráðstefnan er haldin á Íslandi býðst öllum þeim sem koma að málefnum fatlaðs fólks tækifæri til að kynna sér nýjustu rannsóknir, nálganir og aðferðir á sviðið fötlunarfræði á Norðurlöndunum og á alþjóðvísu.