Norrænt mót fyrir 13-17 ára í Finnlandi, vertu með!
Norrænt mót fyrir ungmenni á aldrinum 13-17 ára í Punkaharju í Finnlandi dagana 9.-14.júlí 2018.
Í sumar verður norrænt mót fyrir hressa döff krakka á aldrinum 13-17 ára í Punkaharju í Finnlandi. Leikir, fjör, ævintýri, kvöldskemmtanir og nýjir vinir! Þátttökugjaldið er aðeins 280 evrur. Endilega að skella sér og upplifa ný ævintýri.
Ef áhugi er fyrir hendi eða einhverjar spurningar vakna, velkomin að senda á deaf@deaf.is fyrir 1.maí 2018