Fundargerð aðalfundur 2025

Aðalfundur maí 2025

Aðalfundur Félags heyrnarlausra 9. maí 2025, haldinn í húsnæði Félags heyrnarlausra, Þverholti 14, 105 Reykjavík.

Dagskrá fundarins samkvæmt lögum Félags heyrnarlausra er eftirfarandi:

Hefðbundin aðalfundarstörf

  1. Formaður félagsins setur fundinn

Formaður félagsins, Heiðdís Dögg Eiriksdóttir býður alla velkomna á aðalfundinn og setur fundinn kl. 17:04.

(HDE): Rifjar upp að aðalfundir eru haldnir annað hvert ár og á síðasta ári var haldinn eftirminnilegur fundur í Nauthólsvíkinni þar sem mörg hugtök voru rædd.

  1. Kosning fundarstjóra

Heiðdís býður fólki að kjósa Svövu Jóhannsdóttur sem fundarstjóra.

(HDE): Gjörðu svo vel.

(SJ): Býður gesti velkomna, fer yfir reglurnar með miðana, græna fyrir þá sem eru sammála, gula fyrir þá sem eru hlutlausir og rauða fyrir þá sem eru ósammála. Fundurinn er tekinn upp – passa að ganga ekki fyrir myndavélina og koma upp á sviðið til að spyrja. Fundinum er ekki streymt.

  1. Kosning ritara

(SJ): Kosning ritara, Árnýjar Guðmundsdóttur er með yfirgnæfandi meirihluta.

(SJ): Guðrún fer yfir fjölda fundargesta, áður en hún kemur upp minnir ég á að allir sem koma upp og í mynd verða að skrifa undir leyfi til upptöku vegna persónuverndarlaga. 34 eru mættir á fundinn.

(SJ): Endurskoðandinn kemur upp og fer yfir ársreikninga síðustu ára.

  1. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðustu tvö almanaksár lagðir fram til samþykktar

(Guðmundur Árnason frá Deloitte): ársreikningarnir eru endurskoðaðir og undirritaðir.

Rekstrarreikningur ársins 2023

  • Rekstrarhagnarður hækkar frá 2022 til 2023 um 9,5 milljónir upp í tæpar 12 milljónir

  • Hagnaður í heild fór upp um 13 milljónir milli áranna

Efnahagsreikningur ársins 2023

  • Eignir hækka um tæpar 20 milljónir í heild, komnar upp í 178 milljónir rúmar.

  • Farið yfir sundurliðanir reikninga: aukning er að hluta til vegna styrks v/flóttafólks og annar styrkur frá ríkinu hækkar.

(DH): eru athugasemdir vegna ársreiknings 2023?

(SJ): einhverjar athugasemdir?

Ársreikningar 2023 bornir upp til samþykkis.

Ársreikningar samþykktir með meirihluta.

(GÁ): Ársreikningur 2024 var undirritaður rafrænt – breyting frá 2023.

Rekstrarreikningur 2024

  • Rekstrarhagnaður lækkar um 3,5 milljónir milli 2023 og 2024, niður í 8,2 milljónir.

  • Hagnaður ársins lækkar um tæpar 2 milljónir

Efnahagsreikningur 2024

  • Eignir hækka um rúmar 14 milljónir og eru í árslok 2024 um 193 milljónir

  • Styrkur frá ríkinu vegna flóttafólks tvöfaldast á milli ára, önnur verkefni detta út á móti.

  • Kostnaðarauki vegna dags döff ef mikið til vegna „Þetta er ÍTM“ verkefnisins sem voru í heild um 6 milljónir

(SJ): eru athugasemdir vegna ársreiknings 2023?

(HDE): takk fyrir þetta, takk fundarstjóri – varðandi styrkinn vegna flóttafólks þá var ekki tvöföldun, heldur kom greiðsla fyrir árin 2024 og 2025 greidd í einni greiðslu í lok árs 2024.

(SJ): fleiri spurningar/athugasemdir?

(HAH): Dagur ÍTM virðist vera há upphæð – upphæðin er eðlileg miðað við verkefnið og mun ekki þykja athugaverð eftir tvö ár.

Ársreikningar 2024 bornir upp til samþykkis.

Ársreikningar samþykktir með miklum meirihluta.

(SJ): Takk Guðmundur fyrir að koma og kynna ársreikningana.

  1. Formaður les skýrslu stjórnar frá tímabili síðasta aðalfundar

(HDE): Formanni boðið að fara yfir skýrslu stjórnar sem sýnd er á skjá.

  1. Umræður um skýrslu stjórnar

(SJ): orðið er laust til umræðna um skýrslu stjórnar. Ef ekki er skýrslan borin upp til samþykktar.

Ársskýrslan samþykkt.

  1. Bornar upp tillögur er fyrir fundinn hafa verið lagðar.

(SJ): Ein tillaga hefur borist fundinum og er henni varpað upp á tjald frá Trausta Jóhannessyni um að nafni félagsins verði breytt í Félag döff þar sem orðið heyrnarlaus er svo neikvætt.

(HDE): þetta er mjög stór ákvörðun, stjórnin biður um tíma til að ræða tillöguna við félagsmenn og taka svo upp á næsta aðalfundi, sem er samþykkt.

  1. Kosning til varaformanns og tveggja annarra aðalstjórnarmanna.

(SJ): Júlía beðin að koma upp fyrir hönd kjörnefndar.

Kosning varaformanns:

(JGH): Bettý vill draga sig í hlé, en Kristinn Diego vill bjóða sig fram til varaformanns.

(KD): Kristinn kynnir sig.

(JGH): Meirihlutinn styður Kristinn – enginn á móti og er hann því réttkjörinn varaformaður.

Kosning eins aðalstjórnarmanns:

(JGH): tveir bjóða sig fram, Berglind Stefánsdóttir og Hallbjörn Ómarsson kynna sig. Nú verður kosið á milli Bettýjar og Hallbjörns, get ég fengið aðstoð? Svava aðstoðar við kosninguna og Baldur við talningu

Berglind Stefánsdóttir: IIIII IIIII IIIII IIIII IIII = 24

Hallbjörn Ómarsson: IIIII IIIII III = 13

Berglind kjörinn aðalstjórnarmaður

Kosning tveggja varamanna:

(JGH): Anna Lauga og Svava vilja halda áfram sem varamenn og Hallbjörn býður sig líka fram því eru þrjú í framboði en einungis má kjósa tvo.

Anna Lauga dregur sitt framboð til baka svo núna þarf bara að velja hvort Svava eða Hallbjörn eru varamaður nr eitt og hvort er nr tvö.

(HAH): athugasemd að fundarstjóri sé ekki að stýra meðan hún er í framboði og Bettý tekur við sem fundarstjóri.

Maggý aðstoðar við talningu

Hallbjörn Ómarsson: IIIII IIIII IIIII IIIII II = 22

Svava Jóhannesdóttir: IIIII IIIII IIII = 14

(JGH): til hamingju nýja stjórn – Doddi viltu segja eitthvað

(ÞÖ): Doddi þakkar samstarfið og óskar nýrri stjórn hjartanlega til hamingju. Félagið er sterkt og verður sterkara ef við erum dugleg og stöndum saman. Takk.

(JGH): takk fyrir kosninguna

(SJ): takk fyrir Júlía og kjörnefnd.

  1. Tillögur um lagabreytingar

Engar tillögur bárust um lagabreytingar.

  1. Ákvörðun félagsgjalds

(SJ): Næst ræðum við um árgjaldið. Tillaga um óbreytt félagsgjöld kr. 4.500 á ári. Er tillagan samþykkt? Já, með meirihluta. Takk fyrir.

  1. Önnur mál

(SJ): önnur mál, fyrst ræðum við um menningarhátíðina sem verður á næsta ári, Heiðdís gjörðu svo vel

(HDE): Er með þrjú mál til að ræða.

  1. Norræn menningarhátíð döff, Norrænt mót eldri döff og Norrænt ungmennamót. Logo menningarhátíðarinnar er kynnt, teiknari er Snædís Björt Guðmundsdóttir, hátíðin verður á Selfossi sumarið 2026, kallað er eftir hugmyndum, listaverkum og öðru sem hægt verður að gera. Hátíðin verður fjögurra daga, fyrstu tveir dagarnir í ferðir og seinni tveir í menningarviðburði. Selfoss verður Döfffoss þessa daga.

  2. Júlía vill segja sig úr kjörnefnd, Ragnheiður Sara er tilbúin að halda áfram í kjörnefnd, en stjórn mun sjá til þess að finna tvo aðila með henni fyrir næsta aðalfund eftir tvö ár.

  3. Árný, Gígja og María Jonný eru til í að sitja áfram í Menntunar- og Bjargarsjóði.

(RGM): Sýnir myndband þar sem hún fer yfir ráðningu framkvæmdastjóra menningarhátíðar sem virtist hafa verið ráðin án auglýsingar, vill Ragna láta skipa starfsmannanefnd með fulltrúa úr stjórn, frá SHH og almennum félagsmanni sem myndu sjá um mannaráðningar, sú hugmynd er tekin til stjórnar.

(HDE): Það var auglýst eftir fólki í undirbúningsnefnd, einn aðili bauð sig fram. Viðkomandi var svo ráðin í starfið þegar ljóst var að hún myndi ráða vel við það.

(AJL): Hjálpartæki og þjónusta við þau ætti að fara frá HTÍ til Döff félags og félagið ætti að taka að sér að aðstoða döff fólk sem býr eitt. Tillagan um heimsóknir er bókuð.

(JGH): Hvað finnst ykkur um heyrandi táknmálskennara? Bjóða upp á diplomanám? Það er oft erfitt að fá döff til að sækja um þegar auglýst er eftir táknmálskennurum.

(HAH): Vil ekki heyrandi táknmálskennara, þarf að meta þekkingu döff á eigin tungumáli til jafns við menntun, ekki alltaf meta döff neðar en heyrandi í launum. Þarf líka að skoða af hverju döff sækja ekki um vinnu sem táknmálskennarar.

(BS): Félagið þyrfti að halda umræðufund um málefni táknmálskennara

(SJ): umræða um önnur mál lokið

(HDE): takk fyrir góðan fund

Slitið kl 19:24