Fundargerð stjórnar
Stjórnarfundur 10.mars 2025 kl. 16.00
Mættir: Heiðdís, Berglind, Uldis, Eyrún og Þórður.
Ritari Heiðdís
Fundur með Karólínu 3.mars
Stjórn: Samþykkt að fara af stað að útbúa lög svipað og sjónstöðin og skoða lög túlkaþjónustu. Samþykkt að fara af stað með herferð og þrýsting vegna myndsímatúlkaþjónustu.
Fundur með SHH túlkaþjónustu 6.mars
Stjórn: Upplýsingar og samþykkt lögfræðingur skoði rétt döff til túlkaþjónustu vegna ökuprófs og döff barna í íþrótta- og tómstundastarfi.
Fundur með fulltrúa eldflaugarinnar 7.mars
Stjórn: Samþykkt að auglýsa start fundi fyrir ungmenni og foreldra, bæta við í auglýsingu að ef foreldri óski eftir túlk þá að láta vita (ísl/enska)
Ráðgjafarhópur VMST og Unndis og niðurskurður styrktar Félagsmálaráðuneytisins vegna atvinnufulltrúa Fh
Stjórn: Samþykkt að taka þátt í átaksverkefninu og tilnefna Hjördísi Önnu
EKKÓ - upplýsingar fyrir stjórnarmenn um atvik
Stjórn: EKKÓ setja það á heimasíðuna www.deaf.is og ÍTM með (útdráttur)
Letter of Support of the Project ,,PATH” - upplýsingar
JASPEL sumarbúðir
Stjórn: ef mót er ekki á vegum DNUR/EUDY/WFDYS eða hagsmunasamtaka eða landssamtaka þá getur félagið ekki ábyrgst liðsstjóra/fylgdarmann.
Döff +
Stjórn: Útbúa auglýsingu þar sem óskað er eftir 1-2 gleðisprengjum til að gera skemmtilega hluti með Döff+ einu sinni í mánuði, fá þóknun fyrir verkefnið.
Á döfinni (aðalfundur Fh, DNR, EUD, samráðsfundur málstefnu ÍTM, umræðufundur um túlkamál á Íslandi, örfyrirlestrar lýðheilsufræðslu, ECML Graz í Austurríki)
Stjórn: umræðufundir vegna túlkaþjónustu senda á HART og óska eftir að þau ýti af stað að skipuleggja umræðufundi um viss málefni tengt túlkaþjónustu t.d fjartúlkun, leikhústúlkun til að fá breiðari umræðu um túlkaþjónustu á Íslandi.
Önnur mál
Þingmálaskrá 156. Löggjafarþing 2025 - formaður hvetur stjórnarmenn að lesa þetta
Bettý, tillaga að stjórn skoði skipulagsbreytingar á starfi félagsins í vor.
Stjórn: samþykkt.
Tillaga með salarleigu,
Stjórn: tillaga samþykkt.
Samantekt frá formanni
Fundur með Karólínu 3.mars
Farið yfir stöðuna í hagsmunabaráttunni, tekið ákvörðun að lögfræðingur skoði núverandi lög vegna neyðarþjónustu og túlkaþjónustu, athuga hvort eithvað sé til staðar sem má beita fyrir og eins hvort þurfi að finna fjármagn til að tryggja. Nota greinargerð sem félagið á um neyðarþjónustu.
Rætt um myndsímatúlkaþjónustuna, tillaga að fá SHH til að tilkynna að þau muni loka á þessa þjónustu t.d áramótin 2025/2026 þar sem engin lög tryggja þessa þjónustu og SHH ekki skylt að veita þessa þjónstu. Samtímis munu félagið og stuðningsmenn beita þrýstingi á stjórnvöld og nota niðurstöður frá kærunefnd jafnréttismála.
Rætt um næstu skref til að sækja réttindi í túlkun í daglegu lífi og atvinnu. Lög um SHH, lög um þjónustu- og þekkingarmiðstöð sjónskerta, lög um túlkaþjónstu sem var búin til útfrá dönsku lögum.
Fundur með SHH 6.mars
Rætt um endurgjaldslausa túlkaþjónustu, fjármagn sem skipt er niður í fjóra ársfjórðunga (jan-mars/apr-júni/júl-sept/okt-des), fjármagn nær uppurið fyrir mars. Óskað eftir afstöðu Fh varðandi aðgerðir t.d skerða myndsímatúlkaþjónustu, sækja um styrki til að greiða túlkun í íþróttastarfi döff barna o.s.frv. Formaður lagði til að flýta herferðinni sem var rætt á fundi með lögfræðingi 3.mars en leggja það fyrst fyrir stjórn Fh. Rætt um að samgöngustofa neiti að borga táknmálstúlk fyrir ökupróf - formaður ætlar að fá lögfræðing til að skoða þetta ásamt því að skoða lög um íþróttastarf og farsæld barna hvort ekki sé eitthvað þar sem er hægt að tryggja að börn fái túlk í íþróttastarfi.
Fundur með fulltrúa eldflaugarinnar 7.mars
Rætt við hana um möguleika á að endurlífga yngra starf Puttalinga - börn í mið- og unglingastigi í Grunnskóla og fyrstu árum í framhaldsskóla. Helstu áskoranir sem félagsmiðstöðvar finna með döff börnin er að búseta þeirra er dreifð og því dræmari þátttaka. Tillaga að prófa að útbúa auglýsingu og bjóða táknmálsbörnum og foreldrum á ,,start up” fund 25.mars kl. 17. þar sem þau fá upplýsingar um áhuga og vilja félagsins að gefa börnum tækifæri að útbúa sína eigin dagskrá og koma með sínar hugmyndir með stuðningi frá félaginu (Birta) og félagið býður uppá pizzu. Þeirra tækifæri að njóta ,,döff space” óháð aldursskiptingu. Birta er tilbúin í þetta að styðja við börnin, fyrsta dagskráin verður þá í maí og ef þetta gengur vel þá er hægt að setja kraft í þetta í haust. Fá Hlíðaskóla, foreldrafélagið og Táknmálseyju til að aðstoða við að auglýsa þetta.
Ráðgjafahópur VMST/Unndis
Í sept´25 taka í gildi breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga með auknum hvata til atvinnuþátttöku. Það þýðir að atvinnurekendur þurfa að vera sveigjanlegri í ráðningum.
Tillaga VMST og ÖBÍ að setja á fót ráðgjafarhóp um aðgengi til að liðsinna atvinnurekendum um bætt aðgengi. Aðstaða í Mannréttindahúsinu, verkefnið verður undir VMST (fjárreiður, skýrslugerð og annað utanumhald). Átaksverkefni 2025-2027.
Styrkveiting frá félagsmálaráðuneytinu var skert um 9 milljónir - viðbragðsáætlun sett í gang og VMST með okkur í liði - við styrkveitingu 7.mars kom í ljós að dregið var til baka með þennan niðurskurð ●•
EKKÓ
Ábending barst félaginu sem þótti ástæða að virkja EKKÓ, sá sem kom ábendingunni var kallaður á fund og fengu Heiðdís og Daði að heyra hlið félagsmannsins á málinu og honum veittar upplýsingar um hans stöðu og bjargráð. Síðan var sá sem sakaður var að hafa farið yfir mörkin tekinn i viðtal. Tvær hliðar á málinu og málið talið lokið af hálfu félagsins og allir sem áttu hlut að málinu látnir vita um lok málsins.
Letter of support of the project ,,PATH”
EUD sendi út beiðni um stuðning við verkefnatillögu sem ber nafnið PATH / prevention, awarness, training and held for deaf GBV (gender based violence). Stjórn samþykkti að senda stuðningsyfirlýsingu. Sent 25.febrúar ´25
JASPEL sumarbúðir fyrir döff og coda börn og ungmenni. Slóvakía
Þrír þátttakendur hafa áhuga á að taka þátt. Heimasíða www.jaspel.sk
Samkvæmt síðunni þurfa foreldrar yngri en 18 ára að sækja um þátttöku á heimasíðunni. Mótið er ekki á vegum NGO (non profit government organisation).
Fundi lokið kl. 18.00
