Fundargerð stjórnar

Stjórnarfundur 28.apríl 2025

Stjórnarfundur 28.apríl 2025 kl. 16.00
Félag heyrnarlausra
Fundarmenn: Heiðdís, Bettý, Uldis og Eyrún
Fundarritari: Daði

  1. Skýrsla formanns

  2. Skýrsla framkvæmdastjóra

  3. EUD Varsjá maílok ´25 - EUD TV. Tillögur hafa verið bornar fram fyrir fund - sjá á fundi.

  4. WFD conference Nairobi - Kenya 12.-14.ágúst - Senda fulltrúa?

  5. Önnur mál

Til upplýsinga: Þórður boðaði forföll á fundinn.

  1. Skýrsla formanns

DNR Færeyjar 3.-6.apríl´25. DNR fundur var haldin í Færeyjum í boði Deyvafélagsins í Færeyjum. Sjö Norðurlönd tóku þátt á fundinum. Rætt var meðal annars um viðbragðsáætlanir ef upp kemur krísuástand og hvort Norðurlöndin eigi að gera viðbragsáætlun sem miðar við að taka á móti döff flóttafólki ef upp kemur að flýja þurfi sitt land, öll lönd ætla fyrst að skoða sín viðbragðsáætlun í samstarfi við Almannavarnir, síðan skoða viðbragsáætlun fyrir döff ef þess gerist þörf og síðan verður skoðað hvort og hvernig Norðurlöndi vinna saman að viðbragðsáætlun. Sum Norðurlönd glíma við mikla fjárhagsörðugleika og niðruskurð á fjárveitinu frá stjórnvöldum, rætt var um bjargráð til að komast af og halda rekstri áfram. Sameiginlegur fundur var með DNR og DNUR, rætt um hvernig má bæta betur samskiptin á milli DNR og DNUR og upplýsingaflæði.Ísland mun skoða í sínum gögnum söguleg gögn sem tengjast DNUR þar sem lítið af gögnum hafa varðveist, eins líka að setja upp leiðarvísir um DNR og DNUR og samstarf þeirra beggja. Færeyjar tóku upp umræðu um Bláu bókina sem er einskonar leyfisvottun að fá að starfa um borð í skipi. Sú bók meinar döff að fá leyfi og margir Færeyjingar reiða sig á atvinnu á sjó, Ísland ætlar að taka að sér að hafa samband við WFD þar sem þetta mál varðar víðar og Alþjóðasiglingamálastofnun ber ábyrgð á Bláu bókinni. Í Danmörku er glugginn að opnast í málefnum í snemmtækri íhlutun döff barna og aðgengi að táknmáli fyrir börn og fjölskyldur. Óskað eftir því að landssamtökin á Norðurlöndum sendi á DDL gögn um verkferla í heyrnarprófum og málþroskaprófum og íhlutun fyrir börn. Teckenbro í Svíþjóð var með erindi fyrir fulltrúa DNR um AI og hvað það þýðir fyrir okkur og táknmálssamfélagið, hröð þróun og mikilvægt að döff séu vakandi hverjir eru að vinna með AI og vélþýðingar á táknmáli ,,ekkert um okkur án okkar” á líka við í heimi AI.

Tegnsprogpakken - formaður hefur verið í sambandi við verkefnastýru Tegnsprogpakken í Dk um verkefnið, hvort yfirfæra megi það yfir á Ísland, hugmyndir um ráðstefnu eða málþing um snemmtæka íhlutun og aðgerðir til að vinna á móti ranghugmyndum um táknmál og málsvelti/language deprivation.

Örvar - búið að sækja um styrk fyrir handritsgerð og efnisgerð fyrir táknmálsbörn. Bíðum svars.

Skuggaskýrsla SÞ um rétt fólks með fötlun - formaður kominn í samband við ÖBÍ um skuggaskýrsluna.

Endurvakning Puttalinga – Fulltrúi frá eldflauginni hefur tekið utan um yngstu táknmálsfólkið, selja vöfflur og badminton - höldum áfram.

Athugasemdir við skýrslu formanns:

Skýrsla formanns var samþykkt án athugasemda.

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra:

  1. Fara yfir og samþykkja umsóknir í döffsjóðinn. 14 umsóknir vegna menningaferða erlendis. Framkvæmdastjóri mælir með 30.000 króna hámarksstyrk á hvern umsækjanda enda rýmist upphæðin innan marka árshlutans.

  1. Framkvæmdastjóri ákvað að senda sölumenn hringferðar heim fyrr en áætlað vegna óþrifnaðar og kvörtunar lán- og leigjenda sumarhúsanna sem við höfum mikið treyst á. Ekki var farið eftir aðvörunum og því menn sendir heim. Það sem á eftir að selja á landsbyggðinni verður farin með úkraínskum sölumönnum sem hafa verið að selja í Reykjavík.

  1. Auglýst sumarnámskeið barna og koma tékknesks aðila á námskeiðið. Óljóst með framvindu og skráningu og bað Mordekaí að ræða við Heiðdísi formann varðandi framhald og ákveða dagsetningu hvort þátttaka næginleg eða fella niður og hætta við komu gestsins.

  1. Undibúningur Norræna mótsins og aldraðamótsins er í gangi og vonast til að verð liggi fyrir í næstu viku í síðasta lagi. Verkefnastjóri beggja verkefna er Sigga Vala og framkvæmdastjóri í baklínu og sér um samskipti við Selfoss og Senu. Heimasíðurnar í vinnslu og vonandi er hægt að auglýsa bæði mótin upp úr 10 maí í síðasta lagi.

  1. Stefna að starfsmanna og stjórnarhittingi mjög fljótlega eftir aðalfundinn 8 maí. Finna dagsetningu.

Athugasemdir við skýrslu framkvæmdastjóra:

  1. Samþykkt af stjórn.

  2. Ekki komu athugasemdir frá stjórn.

  3. Auglýsa þarf betur sumarnámskeiðið meðal foreldra og tímasetja frestinn til 2. Maí.

  4. Varðandi æskulýðsmótið þá var tillaga samþykkt að setja undirbúning þess í hendur Hjördísar Önnu sem hefur viðamikla reynslu að skipulagningu æskulýðsmóta.

  5. Stefnt er að stjórnar- og starfsmannahittingi 15 maí. Daði og Heiðdís skipuleggja dagskránna.

  1. EUD Varsjá maílok ´25 - EUD TV. Tillögur hafa verið bornar fram fyrir fund - sjá á fundi.

Formaður kynnti dagskrá EUD á fundinum fyrir stjórnarmönnum. Engar bókaðar athugasemdir settar fram.

  1. WFD conference Nairobi - Kenya 12.-14.ágúst - Senda fulltrúa?

Hvert land má senda allt að 6 fulltrúa. Athugaður áhugi meðal stjórnarfólks að fara á fundinn en formaður mun senda stjórnarmönnum hlekk til frekari kynningar á fundinum og síðar áhuga þeirra að fara.

  1. Önnur mál:

  • Varaformaður spurði um stöðu táknmálsbókar “Baoba”. Formaður segir hugmynd að fá 5 döff stráka hóp í verkefnið og utanaðkomandi verktaka sem halda mun utan um hópinn og upptökur.

  • Staða DNUR sem Ísland gegnir formennsku í er í endurskoðun en fulltrúar annarra Norðurlanda komu að máli við formann á DNR/DNUR fundinum í Færeyjum og lýstu yfir áhyggjum af starfsemi DNUR. Formaður lagði til að Hjördís Anna tæki við utanumhaldi sem “tengiliður” við Ísland í starfseminni í eitt ár eða fram að 2026 þegar formannsskyldu Íslands lýkur.

  • Spurt var hver tengiliður við skuggaskýrslu ÖBÍ í málefnum Sáttmála S.Þ. í málefnum fatlaðra. Það er Sigurður Árnason hjá ÖBÍ.

  • Umræða vaknaði um útgáfu Döffblaðsins og ákvað stjórn að halda sig við fyrri ákvörðun með að gefa blaðið út tvisvar á ári, prentrit kringum afmæli FH og rafrænt haustblað.

Fundi slitið kl. 18.00