Fundargerð stjórnar
Stjórnarfundur 5.júni 2025
Fundargerð tjórnarfundar 5. Júní 2025 kl. 17.00
Mættir: Heiðdís, Eyrún, Uldis, Svava og Hallbjörn
Ritari: Daði
Aðalfundur ÖBÍ 3-4. október 2025
Beiðni frá Endurmenntun HÍ
Bréf frá Lailu vegna málefna döff aldraða
Styrktarumsókn frá FAD (Döff félagi í Finnlandi)
Lokun myndsímatúlkaþjónustunnar og endurgjaldslausrar túlkaþjónustu
DKNF fjárhagsáætlun kynnt
Styrkur frá Örvar styrktarsjóð
Staða HTÍ
Önnur mál
Fundargerð.
Formaður spurði stjórnarmenn hverjir hefðu áhuga á að mæta á aðalfund ÖBÍ. Enginn gat staðfest en hún bað fólk að skoða hjá sér en staðfesta þarf við ÖBÍ hverjir taki þátt fyrir 20. ágúst næstkomandi.
Endurmenntun HÍ sendi styrktarbeiðni upp á 150-200 þúsund til að hægt verði að bjóða upp á námskeið á táknmáli. Stjórn samþykkti styrktarbeiðnina og hvetur til þess að döff útvalinn með sérþekkingu verði fyrirlesari á námskeiðinu um ættfræði eða annað áhugavert svið.
Laila sendi bréf til stjórnar um mikilvægi þess að fá hlutastarf í Mörkina til að sinna málefnum aldraðra og halda utan um viðtöl og greiningarþörf þeirra á þjónustu. Starfinu sinnt frá Mörkinni að mestu þar sem Þjónusta verður einnig veitt. Þetta er mikilvægt skref í aukinni þjónustu sem aldraðir döff þurfa að fá á komandi árum vegna fjölgunar í hópnum. Stjórn samþykkti að auglýsa stöðuna og mun framkvæmdastjóri senda drög að auglýsingunni til samþykkis.
Félag heyrnarlausra í Finnlandi sendi inn styrktarumsókn til FH að félagið kosti ferð eins manns frá Finnlandi á WFD ráðstefnuna í Kenía í Afríku í sumar. Töluverðar umræður sköpuðust um aðkomu FH í þessu en formaður kom með tillögu þess ef tveir fari ekki frá Íslandi mun FH styðja ferð eins Finna á fundinn. Kostnaður áætlaður 3000 Evrur eða um 450 þúsund krónur.
Formaður kynnti stjórn ferlið frá 2016 sem FH hefur barist fyrir endurgjaldslausri túlkaþjónustu og eins að barátta félagsins fyrir þeirri þjónustu og vinnustaðatúlkun séu tvær ólíkar baráttur. Formaður vinnur með lögmanni FH að tillögum um lagabreytingar á orðalagi PFS til að gera réttindi fyrir þjónustunni skýrari auk þess að hitta ráðherra. Þá samþykkti stjórn að fara í pr markaðssetningu til að upplýsa almenning um nauðsyn og réttmæti slíkrar þjónustu og þær hindranir sem fólk verður fyrir með skertri þjónustu.
Fjárhagsáætlun menningarhátíðarinnar 2026 var upplýst fyrir stjórn og bað formaður um samþykki stjórnar fyrir því að Heiðdís, Daði og Sigríður Vala muni vinna að fjárhagsáætlun og kynna hana þegar hún liggur betur fyrir. Tillagan var samþykkt af stjórn.
Formaður upplýsti stjórn að umsókn í styrktarsjóðinn Örvar hafi hlotið hámarksstyrk eða 1,5 milljón í verkefni með heitir “úr vörn í sókn”. Verkefnið er að born úr Táknmálseyjunni læri að skrifa handrit að efni og verði sett upp sem þáttur þar sem bornin læra að leika, taka upp og klippa allt efni þáttarins. Verkefnið verður unnið með SHH.
Ákveðið hefur verið að færa starfsemi HTÍ yfir í heilsugæsluna og undir Sjúkratryggingar. Formaður í samstarfi við önnur hagsmunasamtök í gegnum ÖBÍ vinna að greinargerð um breytingar og senda inn álit.
Önnur mál.
-Uldis leggur til að öll gögn á stjórnarfundum verði varpað á skjá og pappír sparaður í staðinn. Framkvæmdastjóri tekur það til greina.
Fundi slitið kl. 18.00
