Fundargerð stjórnar

Stjórnarfundur 21.ágúst 2025

Stjórnarfundur Fh

21. ágúst kl.16-18

Þverholt 14

Mættir: Heiðdís, Kristinn, Berglind, Uldis, Eyrún og Daði ritari.

  1. Skýrsla formanns

  • EHÍ námskeið um Dövstudier för alla – kennsluefni frá Svíþjóð.

  • Döffmót, samstarf FSFH og Fh með Döffmótið í Vonarlandi við Stokkseyri til 2030.

  • Undirbúningur fyrir DNR 10.-11.okt hafinn, byrjað að vinna með DNUR og finna þarf leiðir fyrir formennsku DNUR fyrir Ísland og NUL.

  • Fundur í sumar með Colin Allen og Kaisu Alanne vegna skoðunnar á að sækja um styrk fyrir stuðning við Bosníu

  • Rætt um hvort Ísland geti skoðað að veita stuðning við Úganda vegna niðurskurðar FAD (Döfffélag í Finnlandi sem hefur veitt aðstoð í nokkur ár)

  • Búið að senda ítrekun á innviðarráðuneytisins vegna beiðni um fund vegna fjarskiptamála.

  • Búið að senda beiðni á Félags-og húsnæðismálaráðuneyti um fund.

  • Norræn menningarhátíð 347 dagar til stefnu, full vinna framundan.

  • Undirbúningur fyrir Storybook verkefnið í samvinnu við Táknmálseyju hafin. ( HDE hafa samband við ULdis og Eyrúnu Aradóttir um áætlun)

Skýrsla formanns samþykkt af stjórn.

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra

  • Happdrættissala fer af stað upp úr mánaðarmótum ágúst/september. Búið að manna bæði hringsölu og sölu á höfuðborgarsvæðinu – fá samþykkt útlit miða.

  • Nýr starfsmaður í málefnum aldraðra - sjúkra(Kristín Harpa) hefur hafið störf. Starfsemin var kynnt félagsmönnum í kaffinu í Mörkinni og eru félagsmenn mjög ánægðir með þessa þjónustu.

  • Framkvæmdastjóri og formaður munu fara í næstu eða þarnæstu viku á Selfoss að kynna sér aðstæður fyrir menningarhátíðina 2026. Stefnan að heimsækja hótel Selfoss, Hvíta húsið(tjaldið) og Sunnulækjaskóla.

  • Óska eftir upplýsingum hvað FH vill gera með þátttöku í ICSD til framtíðar. Þeir eru með kröfur á ÍFH upp á 3.600 USD vegna ógreiddra félagsgjalda en starfsemi og stjórn ICSD hefur verið í óreiðu í mörg ár en eru eitthvað að reyna að endurreisa starfsemina víst.

  • Norska íþróttasambandið er búið að bjóða fulltrúum ÍFH í 100 ára afmælisveislu sambandsins 18. október. Hvað vill stjórnin gera?

Umræður sköpuðust um framtíðar stoðþjónustu við aldraða og veika döff. Ákveðið að vinna málið og greiningu með Kristni og leggja fram til félagsmálayfirvalda og samtök sveitarfélaga.

Varðandi ICSD óskað að athuga úrsögn úr samtökunum þar sem engin íþróttastarfsemi er í gangi sem stendur og ferli við umsókn í samtökin ef íþróttastarf vaknar og eflist hér á landi.

Tillaga stjórnar að bjóða virkum félagsmanni í íþróttastarfi að fara fyrir hönd ÍFH á afmælisviðburðinn í Noregi.

  1. Fastir liðir 2025-2026 - bið stjórnarmenn að huga að hugmyndum fyrir viðburði t.d Alþjóðaviku Döff

  • Alþjóðavika Döff 22.-28.september og þemað í ár er ,,No Human Rights Without Sign Language Rights"

  • Alþjóðadagur táknmála 23.september og bláu ljósin á (HÍ, Harpa, Hallgrímskirkja, Kópavogskirkja og fleiri hafa sett bláu ljósin á og það má endurtaka og bæta við stöðum með því að senda á þau litakóðann)

TILLÖGUR STJÓRNAR:

Umræðurfundur um nafn félagsins og logo –KAD tilbúinn að stýra þessum umræðufundi

Vitundarvakning – finna leið til að kynna á netinu helstu staðreyndir u ÍTM og Döff. HDE teiknar upp og sendir á stjórn til álits.

Bláu ljósin - senda bréf á helstu staði og óska eftir að þau kveiki á bláu ljósin

Bjórkvöld og Táknmálsslamm - athuga félagsmenn og BS sér um táknmálsslamm

Fyrirlestur um RUBELLA/Rauðu hunda syndrome 30.sept

  • Aðalfundur ÖBÍ 3.og 4.október - búið að skrá alla stjórnarmenn og framkvæmdastjóra, getum staðfest þrjá fulltrúa þegar við höfum sammælst um það hverjir fara á fundinn.

Bettý og Uldis komast ekki en ákveðið verður þegar nær dregur hverjir mæti fyrir hönd FH.

  • DNR og NTN fundur í Kaupmannahöfn 10. og 11.október. (sameiginlegur fundur 10.okt og svo DNR 11.okt)

  • Gott ef við getum haft vinnufund stjórnar og starfsmanna og fulltrúa deilda í okt eða nóv.

Ákveðið að halda vinnufund stjórnar aðra vikuna í nóvember og fókusera á hlutverk, markmið og áskoranir starfsfólks, formanns og stjórnar til næstu ára.

  • Afmæli félagsins 11.febrúar

  • Dagur ÍTM 11.febrúar

  • Enginn aðalfundur 2026

  • DNR fundur vor 2026 - Finnland

  • NUL Norræn æskulýðsjmót 21. – 28. Júlí 2026

  • Norrænt mót aldraða 3.-7.ágúst 2026

  1. Drög að dagskrá NTN 10 okt í Kaupmannahöfn - sjá viðauka

  1. BS - Stjórmálaflokkar - baràttumàlin ?

  1. BS- Fara yfir starfsmenn og hlutverk þeirra , endurskoða þörfina á næstu 3 árin

Málin verða kryfjuð á vinnufundi stjórnar í nóvember.

  1. BS - 11 febrúar barnamenning í Hlíðaskóla

  1. BS - Audism gjennom livet handrit ? (HDE tillaga að taka stöðuna með Erdem framkvæmdasjtóra SDR á fundi 10.og 11.október)

Samþykkt að skoða möguleika á að yfirfæra handritið yfir á ÍTM

  1. Önnur mál

  • HDE: Tillaga CODA foreldrahandbók fyrir döff foreldra

Stjórn samþykkti tillögu formanns að þýða úrdrátt úr handbókinni yfir á íslensku

  • HDE: Atvinnustefna Íslands tíu ára áætlun, ÖBÍ sendi umsögn

Formaður ekki upplýstur um atvinnustefnuna fyrr en of seint og ekki hægt að senda umsögn inn á samráðsgátt en ÖBÍ fyrir hönd regnhlífasamtakanna sendi inn umsögn.

  • HDE: herferð - táknmálspakki í samvinnu við málnefnd ÍTM og SHH.

Samþykkt að vinna þetta í samstarfi við málnefnd ÍTM og SHH

Fundi slitið kl. 18.10