Fundargerð stjórnar

Stjórnarfundur 18.september 2025

  1. september 2025 kl. 16.30

Þverholt 14

Mættir: Heiðdís, Uldis, Bettý, Eyrún, Kristinn og Daði framkvæmdastjóri og fundarritari

Fundardagskrá:

  1. Skýrsla formanns

    1. Formannafundur ÖBÍ, EKKÓ.

    2. Endurgerð á stöðu lagaumhverfis í þágu ÍTM og Samning SÞ um réttindi fatlaðra, skil 25.sept.

    3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um HTÍ nr. 42/2007. Samráðsgátt og lokafrestir til að skila umsögn 23.sept.

    4. Fundur með RÚV 12.sept. Rætt um sýningu á ,,Þetta er ÍTM”, jákvæð niðurstaða og stefnan að sýna 11.febrúar 2026, rætt um textun og leiðbeiningar um textun og að taka þarf fram um hvort er að ræða forunna texta eða rauntímatextun og að lokum var rætt um táknmálstúlkaða kvöldfrétti að þeir detti niður ef um er að ræða íþróttaleiki á RÚV2 og verið er að skoða þá tillögu að hafa á RÚV1 ef leikir eru á RÚV2.

    5. Fundur með Unni Pétursd. og Hjördísi Önnu vegna DNUR og NUL, allt komið í gang. DNUR+NUS í Þrándheimi 9.-12.október og NUL á Íslandi 21.-28.ágúst en veirð að skoða að fækka dögunum.

    6. Örnámskeið hjá ÖBÍ ,,fjárlagafrumvarpið krufið” með Oddnýju G. Harðardóttur

24.sept.

  1. DNR 10.-12.okt, fundardagskrá tilbúin og búið að fá staðfesta þátttöku fulltrúa DNR

  2. Fundur með Gleðibankanum 19.sept um afþreyingu og dagskrá fyrir döff og táknmálsbörn og ungmenni.

Athugasemdir varðandi skýrslu formanns:

a. Samþykkt að taka EKKO fyrir á vinnufundi stjórnar og setja í fastmótað ferli.

c. Kristinn Arnar mælir með að leita ráða hjá Stefán Haddonk sem skrifað hefur greinar um kuðungsígræðslur og fá álit hans um breytingar á lögum HTÍ – samþykkt.

d. Loks fékkst fundur með RÚV og stefnt er á að sýna þættina í lok febrúar. Eins rætt um textunavandræði hjá RÚV og visa þau á símafyrirtækin að þar liggi tæknilegir erfiðleikar og mikilvægt að hvert símafyrirtæki útbúi leiðbeiningar með hvernig finna skuli textun í búnaði símafyrirtækjanna.

e. Unnur Pétursdóttir tilbúin að taka að sér að halda utan um NUL.

h. Stjórn þarf að finna ráð til að efla þátttöku döff ungmenna í gleðibankanum.

Skýrsla framkvæmdastjóra

  1. Ólögleg söfnun í nafni heyrnarlausra eða félagsins á vegum óþekktra aðila, upplýsingar fyrir stjórnarmenn.

Engar athugasemdir stjórnar.

  1. Alþjóðavika Döff - auglýsa þegar þetta er klárt.

    1. Á Félag heyrnarlausra að skoða breytingu á nafn félagsins og logo?

Umræðukvöld 23.sept kl.17-18.30, umsjón Kristinn Arnar Diego

  1. Spurningakvöld - allt á milli himins og jarðar. 25.sept kl.17-19, umsjón Heiðdís Dögg

  2. Kaffi í tilefni af alþjóðaviku döff. 26.sept kl.14-16, umsjón Félag heyrnarlausra

  3. Grillmatur. Kl.13-15 í sal Félags heyrnarlausra, umsjón viljugs félagsmanns

  4. Táknmálsbingó. Kl. 15-17 í sal Félags heyrnarlausra, umsjón Félag heyrnarlausra

  5. Meðfædd Rauðu hunda heilkenni/Rubella syndrome og áhrif þess, 30.sept kl.17- 18 í sal Félags heyrnarlausra. Lone Abild

  6. Samfélagsmiðlar:

Setja inn innlegg/póst á IG/FB félagsins á hverjum degi tengt döff og táknmál. Umsjón, Heiðdís og stjórn Fh.

Dagskrá samþykkt af stjórn.

  1. Vinnudagur stjórnar Fh – finna tíma

Ákveðið var að halda vinnufund 1. nóvember kl. 10-14

  1. Viðburðir á vegum félagsins, tillaga frá félagsmanni.

Stjórn samþykkti að semja við Elísabet sem viðburðarstjóra í ákveðnum viðburðum. Framkvæmdastjóri semur við hana.

  1. Upptökur og klipping á vegum félagsins.

Stjórn samþykkti að ráða Tomas Dovydaitis í 20% stöðu sem upptöku og klippimann hjá félaginu.

  1. Önnur mál:

-Stjórn samþykkti að senda RÚV ábending og athugasemdir u um gæðamál táknmálstúlka í sjónvarpsfréttum.

-Stjórn vill einnig leggja fram tillögur að túlkun í krakkarúv verði í höndum döff barna en ekki túlka.

Stjórnarfundi lokið kl. 18.00