Fundargerð stjórnar
Stjórnarfundur 16.desember 2025
Stjórnarfundur 16.12.2025 kl. 16.30
Mættir: Heiðdís, Berglind, Uldis, Eyrún
Ritari: Daði
Gjald vegna álags vegna túlkaþjónustu Sjúkratryggingar Íslands
Héraðsdómur Reykjavíkur vísar frá reikning túlkaþjónustu
EUD fundur í janúar 2026
Ársbyrjun og vorönn félagsins 2026
TR og örorkulífeyrir
Rekstur og happdrættissala Fh - Daði
Önnur mál
Samþykktir og athugasemdir stjórnar:
Lögfræðingur og formaður gerðu athugasemdir til SÍ vegna álagsgjalda vegna túlkaþjónustu sem sett voru á læknareikning tveggja skjólstæðinga enda skýrt brot á réttindum döff til túlkaþjónustu. SÍ hefur leiðrétt og endurgreitt þessi gjöld og er málið í vinnslu innan SÍ að afnema þenna ólögmætu gjöld. Formaður og lögfræðingur munu fylgja því máli eftir til enda.
Annað mál er í vinnslu hjá formanni og lögfræðingi sem hefur komið inn á borð FH er að hvorki Héraðsdómur né lögfræðingar hafa samþykkt að greiða túlkakostnað vegna dómsmáls og mun málinu fylgt eftir til enda.
Heiðdís formaður mun sækja auka aðalfund EUD á netinu í janúar – samþykkt
Lögð var fram tillaga að fá gestafyrirlesara til landsins í stað aðalfundar sem ekki verður haldinn í ár. Berglind lagði fram tillögu að fá einnig jákvæða strauma á fyrirlesturinn með hláturjóga eða svipuðu. Stjórn samþykkti þessar tillögur sem verða settar í vinnslu.
Heiðdís, Hjördís og Laila sóttu fund til TR vegna yfirlýsingar TR um réttindi flóttafólks og annarra erlendra aðilaá mannúðarleyfi að sækja um lífeyrisréttindi. Þar kom skýrt fram í rökstuðningi að flóttafólki á mannúðarleyfi er ekki mögulegt að sækja um örorkubætur né aðrir sem hafa hlotið örorkumat og bætur í sínu heimalandi. Þessi niðurstaða gefur starfsfólki FH skýra niðurstöðu í þjónustu sinni til þessa hóps. Samþykkt af stjórn.
Óskir komu frá stjórn að við umsóknir styrkja skulu nöfn annað hvort framkvæmdastjóra eða formanns standa undir við umsóknirnar. Brugðist verður við þessu.
Engar bókaðar athugasemdir í öðrum málum
Önnur mál:
Undirbúningsnefnd NUL á Íslandi 22-27 júlí 2026 sendi beiðni um styrk frá stjórn til að kosta gera bola og rútuferðir báðar leiðir til Hrútafjarðar sem og að baktryggja mótið fjárhagslega ef til þess kæmi. Stjórn samþykkti umsóknina #fylgiskjal 1 í möppu.
Stjórn samþykkti að kaupa handgert stafróf “Félag heyrnarlausra” af Unni Pétursdóttur
Skýrsla framkvæmdastjóra
Skattur gerir athugasemdir vegna skráningu FH sem almannaheillafélag. Vantar lagabreytingu á lögum félagsins þar sem gera á grein fyrir fjármunum félagsins ef til slits á því kemur. Þarf auka aðalfund og 2/3 atkvæða til að það gangi upp.
Stjórn mun skoða næstu skref í fundarboði
Svót greining
Stjórn óskaði eftir greiningu á fjármálum og rekstrarstöðu FH með tilliti til hvort til séu áætlanir ef helstu tekjustoðir hryndu eða breytingar yrðu á. Framkvæmdastjóri kynnti stöðuna og helstu áætlanir ef til meiriháttar breytinga kæmi á rekstri og tekjustöðum FH. Stjórn samþykkti
Hausthappdrætti niðurstaða haustsölunnar var 15.080 miðar sem er mjög góður árangur. Samþykkt af stjórn.
Starfsmaður uppsögn skv ákvörðun vinnufundar stjórnar verður framkvæmd í lok janúar. Ekki móralskt að gera slíkt í lok desember. Samþykkt af stjórn
Umsóknir um styrki – undirritun umsóknaraðila felst í tengslum sem fólk hefur við bæjarfulltrúa og bæjarstjóra – meira praktíst aðgerð en nokkuð annað. Mikil samkeppni um styrki og því notum við öll tengsl sem hægt að hafa.
Sjá lið 6 í fundargerð
Guðjón eigandi DRA hótelsins í næsta húsi hefur sýnt áhuga á að kaupa fasteign FH hér í Þverholti. Hann er að hugsa drög að tilboði sem ég mun skoða vel með fasteignasala og kynna stjórn til ákvörðunar um framhald – ef slíkt verður af.
Samþykkt af stjórn.
